Anna Dóra Antonsdóttir
Anna Dóra Antonsdóttir fæddist á Dalvík 3. október 1952 og ólst þar upp. Hún tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1972 og kennarapróf frá KHÍ 1976. Hún flutti síðan til Noregs árið 1989 og lauk námi í sérkennslufræðum frá Oslóarháskóla árið 1990. MA prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands lauk hún árið 2007 með lokaverkefni um Húsfrú Þórunni Jónsdóttur á Grund í Eyjafirði (1509-1593).
Anna Dóra vann á námsárum fjölbreytt störf til sjávar og sveita. Kennsla og kennsluráðgjöf hefur verið hennar ævistarf, auk ritstarfa. Síðustu tuttugu árin vann hún sem ráðgjafi á fræðsluskrifstofu og framhaldsskólakennari. Um tuttugu ára skeið bjó hún á Frostastöðum í Skagafirði og stundaði búskap samhliða öðru. Hún vinnur nú við skriftir og þýðingar og er félagi í Reykjavíkur-akademíunni. Anna Dóra er búsett í Reykjavík, gift og móðir tveggja uppkominna sona.
RITSKRÁ:
Frumsamin skáldverk
Þar sem skömmin skellur
Refer í hættu
Barraging á Örlygsstöðum
Hafgolufólk
Brúðkaupið í Hvalsey
Konan sem fór ekki á fætur
Huldur
Hefurðu farið á hestbak
Voðaskotið
Sjór
Útgáfuár
2019
2017
2013
2012
2006
2003
2001
1998
1998
1998
Kristrún Guðmundsdóttir
Kristrún Guðmundsdóttir er fædd árið 1953 í Keflavík með rætur norður í Þingeyjarsýslu. Dvaldi öll sumur norður á Húsavík í uppvextinum. Hún lauk kennaraprófi B.Ed. frá Kennaraháskóla Íslands árið 1979, sérkennaraprófi frá Háskólanum í Osló árið 1986 og prófi í Bókmenntafræði við sama skóla árið 1990. Hún lauk meistaraprófi M.Ed árið 2001 frá Kennaraháskóla Íslands, þar sem hún sameinaði bókmenntir og sérkennslufræðin, en ritgerð hennar Tilfinningar í felum, fjallar um rithöfundinn Steinar Sigurjónsson.
Kristrún hefur sinnt kennslu bæði í Noregi og hér heima, aðallega á framhaldsskólastigi. Hún hefur búið og starfað í Noregi með hléum allt frá því árið1984. Frá því árið 2002 hefur hún kennt við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Jafnframt því hefur hún verið með annan fótinn í Noregi við störf. Kristrún hefur hlotið viðurkenningar fyrir ljóð sín bæði hér heima og erlendis. Árið 2000 hlaut hún viðurkenningu Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar fyrir framúrskarandi handrit að ljóðabókinni Fingurkoss. Hallberg Hallmundsson hefur þýtt nokkur ljóð eftir Kristrúnu og þau hafa birst í tímaritum erlendis. Þá hefur hún samið texta fyrir danska tónskáldið Leif Martinussen um íslenska vorið og sumarið, en það var hluti af verki tónskáldsins um norræna birtu. Verkið var flutt í Reykholtskirkju Í Borgarfirði árið 2014. Kristrún hefur einnig fengist við leikritagerð og aðeins við þýðingar.
Kristrún er búsett í Keflavík og á Eyrarbakka, gift og móðir þriggja uppkominna dætra og barnabörnin orðin fjögur.
RITSKRÁ:
Frumsamin skáldverk
Sólarkaffi
Eldmóður
A stranger in Reykjavík
Sunnudagsmálari
Hengiflug
Another Paradox
Huldur
Fingurkoss
Hugfró
Útgáfuár
2019
2016
2014
2006
2005
2003
2001
2000
1996
LEIKRIT:
Pabbi, þú ert betri en Picasso
Á sjó
Englatrompet
2013
2013
2012
Steinunn María Halldórsdóttir
Steinunn María Halldórsdóttir fæddist 1977 og ólst upp í Reykjavík. Hún lauk prófi í þýsku frá Háskóla Íslands og tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Á árunum 2011-2014 stundaði Steinunn nám í ritlist og þýðingarfræðum í Háskóla Íslands. Á þeim tíma varð til Sagan af Víólu, Sæsa og illskeyttu norninni Elvíru, sem gefin var út hjá Espólín forlagi á árinu 2022. Steinunn lést árið 2019.