NÝ BÓK!

Espólín Forlag kynnir með stolti nýja bók – Appelsínugulur himinn yfir Austurbæjarskóla eftir Kristrúnu Guðmundsdóttur. Myndskreytir er Kalli Youze.

Appelsínugulur himinn er fyrsta barnabók Kristrúnar. Áður hefur Kristrún sent frá sér fjölda ljóðabóka og skáldsagna, óskáldlega matreiðslubók auk þýðinga. Árið 2000 hlaut Kristrún viðurkenningu Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðahandrit sitt Fingurkoss.

Bókin fjallar um Kötlu Rún sem er 10 ára og lifir og hrærist í sögum sem hún semur með ömmu sinni Huggu. Skil á milli skáldskapar og veruleika verða stundum óljós þegar Katla Rún setur á sig hugsanahjálminn og ímyndunaraflið tekur völdin. Þá lokar hún sig inni í eigin höfði þar sem allt getur gerst. Sagan einkennist af heimspekilegri samræðu enda eru börn í eðli sínu heimspekingar. Heillandi heimur verður til í hugskotum og sögugerð Kötlu Rúnar. Hún fær ró og næði til að sökkva sér niður í bækur og sögur. Sagan fjallar um mikilvægi þess að bjóða börnum upp á næði og einbeitingu til sköpunar.

Bók sem enginn skyldi láta fram hjá sér fara.